Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
24

Jóhanna áfram formaður USÚ

07.06.2021

Ársþing USÚ, það 88. í röðinni fór fram í Mánagarði í Nesjum þriðjudaginn, 1. júní. 28 fulltrúar af 49 mættu og öll félög nema eitt sendu fulltrúa.

Í upphafi þings var Ingvars Más Guðjónssonar minnst, en hann féll frá langt fyrir aldur fram í desember síðastliðnum. Ingvar var afar virkur í starfi Ungmennafélagsins Mána síðustu mörg ár og varamaður í stjórn síðasta ár.

Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ, setti þingið og bauð þingfulltrúa velkomna. Arna Ósk Harðardóttir stýrði þinginu og Jón Guðni Sigurðsson ritaði þinggerð.

Einungis tvær tillögur lágu fyrir þinginu að þessu sinni. Annars vegar hefðbundin tillaga um hvatningu til ungmennafélaga til að fjölmenna á 23. Unglingalandsmót UMFÍ og á 10. Landsmót UMFÍ 50+. Tillagan felur einnig í sér hvatningu til að taka þátt í almenningsíþróttaverkefnum á vegum UMFÍ og ÍSÍ.  Hins vegar tillaga um að nefndin sem vinnur að nýrri lottóreglugerð fái endurnýjað umboð til að halda sinni vinnu áfram. Stefnt er að því að leggja nýja reglugerð fyrir, eigi síðar en á ársþingi 2022. Vegna alls þess róts sem varð á íþróttastarfi árið 2020, var ákveðið að velja ekki íþróttamann ársins fyrir það ár og veita heldur ekki sérstök hvatningarverðlaun. Úr þessu verður bætt á næsta ársþingi 2022, en USÚ verður einmitt 90 ára þá.

Stjórn USÚ gaf kost á sér til endurkjörs og skipti með sér verkum á örfundi eftir ársþingið eins og lög gera ráð fyrir. Jóhanna Íris Ingólfsdóttir er áfram formaður, Jón Guðni Sigurðsson, ritari, og Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri.  Ásta Steinunn Eiríksdóttir gaf kost á sér áfram sem varamaður, en Hjálmar Jens Sigurðsson ekki. Í hans stað var Hannes Halldórsson kosinn með lófataki. Hjálmari er hér með þakkað fyrir sitt góða starf í þágu USÚ og körfuknattleiksdeildar Sindra.

Garðar Svansson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ. Hann flutti kveðju frá framkvæmdastjórn og starfsfólki ÍSÍ og greindi frá ýmsum verkefnum sem ÍSÍ stendur fyrir. Hann hvatti jafnframt þingheim til að nýta sér þá þjónustu sem skrifstofa ÍSÍ hefur upp á að bjóða. Að loknu ávarpi afhenti Garðar Sigurði Óskari Jónssyni, gjaldkera USÚ, Silfurmerki ÍSÍ sem framkvæmdastjórn ÍSÍ ákvað að sæma hann, fyrir mikið og gott starf í þágu íþróttahreyfingarinnar.

Myndir með frétt