Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Aukin fagmennska í öflugu íþróttastarfi

07.06.2021

Íþróttabandalag Akureyrar, eitt af níu Fyrirmyndarhéruðum ÍSÍ, vinnur markvisst að því að öll aðildarfélög bandalagsins hljóti gæðaviðurkenninguna Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Bandalagið sjálft hlaut viðurkenninguna í desember 2019 og var með því fjórða íþróttahéraðið til að hljóta viðurkenninguna. Síðan þá hafa fleiri héruð bæst í hópinn og hafa nú níu íþróttahéruð hlotið gæðaviðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ.
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með framvindu mála hjá ÍBA síðustu mánuðina en frá síðustu áramótum hafa fimm félög hlotið viðurkenninguna og bæst þar með í hóp þeirra Fyrirmyndarfélaga ÍSÍ og Fyrirmyndardeilda ÍSÍ sem fyrir voru innan ÍBA. Það verður spennandi að fylgjast með frekari framgangi mála á vettvangi ÍBA næstu mánuðina.

Helgi Rúnar Bragason, framkvæmdastjóri ÍBA:

„Við hjá Íþróttabandalagi Akureyrar erum mjög ánægð með hvernig aðildarfélögin hafa brugðist við áherslum okkar og Akureyrarbæjar um að þau fái viðurkenningu hjá ÍSÍ sem Fyrirmyndarfélög. ÍBA er Fyrirmyndarhérað ÍSÍ og því eðlilegt framhald að aðildarfélögin verði Fyrirmyndarfélög, þ.e. þau þeirra sem ekki voru það fyrir. Við álítum þessa þróun í alla staði mjög jákvæða enda eykur þetta enn frekar fagmennsku í okkar öfluga íþróttastarfi.”

ÍSÍ hvetur íþróttahéruð, íþróttafélög og deildir þeirra til að kynna sér gæðaviðurkenningar ÍSÍ og skoða þau skilyrði sem uppfylla þarf til að hljóta þær.

Myndirnar sem fylgja fréttinni eru frá afhendingu gæðaviðurkenninganna Fyrirmyndarfélag ÍSÍ til Skíðafélags Akureyrar og Skautafélags Akureyrar.

Myndir með frétt