Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Stjórn endurkjörin á sundþingi SSÍ

02.06.2021

64. ársþing Sundsambands Íslands fór fram 1. júní í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Björn Sigurðsson var endurkjörinn formaður sambandsins sem og stjórnin öll.

Þingforsetar voru þau Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri SSÍ og Hörður Þorsteinsson formaður Badmintonfélags Hafnarfjarðar en þau eru bæði nýkjörin í framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Nýkjörin stjórn er eftirfarandi:
Formaður til tveggja ára (2023)
Björn Sigurðsson ÍBH

Fjórir meðstjórnendur til fjögurra ára (2025)
Hörður J. Oddfríðarson ÍBR
Viktoría Gísladóttir UMSK
Leifur Guðni Grétarsson ÍA
Hilmar Örn Jónasson ÍRB

Fjórir meðstjórnendur eiga seturétt í stjórn til 2023:
Bjarney Guðbjörnsdóttir ÍA
Elsa María Guðmundsdóttir ÍBA
Júlía Þorvaldsdóttir ÍBR
Oddur Örnólfsson ÍBR

2 félagslegir skoðunarmenn reikninga til tveggja ára (2023)
Lóa Birna Birgisdóttir ÍBR
Guðmundur Stefán Björnsson ÍBH

Góðar umræður sköpuðust á þinginu, nefndarstörf voru öflug og bárust breytingatillögur úr nefndum í einstaka málum. Öll mál sett fyrir þingið voru þó á endanum samþykkt einhljóða. 

Myndir með frétt