Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

34. Karateþing KAÍ

01.03.2021

34. Karateþing Karatesambands Íslands var haldið sunnudaginn 28. febrúar í D-sal Íþróttamiðstöðvarinnar Laugardal. Vegna breyttra sóttvarnarreglna stjórnvalda var hægt að boða fullan fjölda þingfulltrúa frá félögunum. Um 20 fulltrúar sóttu þingið frá 8 karatefélögum og -deildum. Gunnar Bragason, gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ, sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ.

Gunnar Bragason, gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ, var gestur á þinginu. Bar hann kveðjur frá forseta, framkvæmdastjóra og framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Reikningar sambandsins voru samþykktir, fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 og Afreksstefna fyrir næstu 4 ár.
Stjórnin gaf öll kost á sér til endurkjörs og var kosin með lófaklappi. Einn nýr stjórnarmaður var kosinn í varastjórn, Katrín Ingunn Björnsdóttir.

Streymt var frá þinginu hér á Youtube-rás Karatesambandsins.

Á myndinni eru:
Stjórn KAÍ 2021-2022. Frá vinstri, Ævar, Elías, Katrín, Reinharð, María, Sigþór, Hafþór og Rut.