Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Stýrihópur um íþrótta- og tómstundastyrki

04.02.2021

Félags- og barnamálaráðuneytið hefur stofnað sérstakan stýrihóp um íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn frá efnaminni heimilum, með fulltrúum frá félags- og barnamálaráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Íþróttasambandi fatlaðra, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Ungmennafélagi Íslands. Fulltrúi ÍSÍ í hópnum er Þórarinn Alvar Þórarinsson, verkefnastjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.

Ráðuneytið hefur ráðið Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur sem verktaka tímabundið til sjö mánaða í stöðu verkefnastjóra til þess að hafa umsjón með verkefninu og verður Sigrún Sjöfn einnig starfsmaður stýrihópsins. Sigrún Sjöfn er með fjölbreytta reynslu og menntun á sviði íþrótta og fræðslumála ungmenna. Hún hefur starfað hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár en hún útskrifaðist sem lögreglumaður frá Háskólanum á Akureyri árið 2020. Sigrún er með MLM gráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og B.Ed. í grunnskólakennslu frá Háskóla Íslands.

Verkefnið er hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda til þess að bregðast við áhrifum Covid-19 faraldursins á fjölskyldur og heimili landsins. Hluti af verkefninu er að taka saman reynsluna og árangurinn af íþrótta- og tómstundastyrkjunum, en þetta er í fyrsta skipti sem ráðuneytið ræðst í slíkar aðgerðir á erfiðum tímum, og er lagt upp með að reynslan og þekkingin sem safnast saman geti orðið grunnur að raunverulegum kerfisbreytingum í þessum málum. Jafnframt er gert ráð fyrir að verkefnastjóri hitti sveitarfélög, forsvarsmenn íþróttafélaga og aðra sem hafa beina aðkomu að verkefninu og mun Sigrún Sjöfn taka saman þau gögn sem verða notuð í frekari vinnu.

ÍSÍ hlakkar til samstarfsins við Sigrúnu Sjöfn og óskar henni velfarnaðar í starfi.

Mynd með frétt: Stjórnarráð Íslands