Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Tannverndarvikan

01.02.2021

 

Tannverndarvika embættis landlæknis og Tannlæknafélags Íslands stendur yfir dagana 1.-5. febrúar og í ár er áherslan lögð á fræðslu um skaðleg áhrif orkudrykkja, bæði á almenna heilsu sem og tannheilsu ungmenna. Neysla íslenskra ungmenna í 8.-10. bekk er með því mesta sem þekkist í Evrópu en um helmingur ungmenna í 10. bekk segist drekka orkudrykki. Ýmislegt fræðsluefni verður aðgengilegt í streymi á vefsíðu embættis landlæknis í tannverndarvikunni, sjá frétt á heimasíðu embættisins.