Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Óvenjulegt héraðsþing HSK tókst vel

18.09.2020

46 manns mættu á 98. héraðsþing Héraðssambands Skarphéðins (HSK) var haldið á Hvolsvelli í gær 18. september. Mælst hafði verið til þess að einn fulltrúi kæmi frá hverju félagi og gekk það eftir. Fámennara héraðsþing hefur ekki verið haldið síðan 1959. Trúlega hefur héraðsþing ekki staðið skemur í sögu sambandsins, en þinghaldið tók klukkutíma og korter, enda var ýmsum hefðbundnum dagskrárliðum sleppt. Þinghaldið gekk vel fyrir sig og vel var hugað að sóttvörnum.

Frjálsíþróttakonan Fjóla Signý Hannesdóttir og handknattleiksmaðurinn Haukur Þrastarson, bæði úr Ungmennafélagi Selfoss, voru útnefnd íþróttakona og íþróttakarl Héraðssambandsins Skarphéðins árið 2019.
Unglingabikar HSK 2019 hlaut æskulýðsnefnd Hestamannafélagsins Geysis, foreldrastarfsbikar HSK 2019 fór til Badmintondeildar Hamars og Dímon var sigurvegari í heildarstigakeppni HSK vegna héraðsmóta HSK. Þá var Jason Ívarsson valinn Öðlingur ársins.

Stjórn HSK lagði fram 10 tillögur á þinginu og voru þær allar samþykktar, þar á meðal tillaga um að veita Íþróttafélagi Uppsveita aðild að HSK. Aðildarfélög sambandsins eru nú 58 talsins.
Í lok þings var kosið í starfsnefndir sambandsins og þá var stjórn og varastjórn sambandsins endurkjörin.

Ársskýrsla sambandsins kom út á þinginu og má nálgast hana hér.

Myndirnar eru teknar á þinginu og koma frá HSK.

Myndir með frétt