Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

ÍSÍ hvetur fólk til þess að hreyfa sig í Íþróttavikunni

18.09.2020

Íþróttavika Evrópu fer fram 23. – 30. september næstkomandi í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir verkefninu hér á landi en markmiðið er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er sérstök áhersla lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Hægt er að sjá viðburði tengda Íþróttaviku Evrópu á www.beactive.is og hér á Facebook síðu BeActive á Íslandi