Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Vertu sterkur hlekkur í keðjunni

27.04.2020

Smáforritið Rakning C-19 er mikilvægur hlekkur í því viðamikla starfi sem er í gangi vegna Covid-19. Smáforritið hjálpar til við að greina ferðir einstaklinga síðustu 14 daga og rekja saman við ferðir annarra þegar upp kemur smit eða grunur um smit. Því fleiri sem sækja smáforritið, því betri og skilvirkari eru upplýsingarnar sem hægt er að vinna úr því. Smáforritið er bæði fyrir Android og iOS tæki og er opið öllum.

ÍSÍ hvetur fólk í íþróttahreyfingunni til að hlaða niður smáforritinu Rakning C-19 og styðja með því mikilvægt starf sóttvarnaryfirvalda.

Hér getur þú lesið meira um forritið og persónuvernd.