Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Göngum í skólann verkefnið

16.09.2019

Göngum í skólann er enn í fullum gangi. Tilvalið er að hvetja börnin til að velja sér virkan ferðamáta í skólann strax í byrjun skólaárs. Mikilvægt er að fara vel yfir umferðarreglur með börnunum en hægt er að fara á umferðarvefinn www.umferd.is sem er fræðsluvefur um umferðarmál fyrir nemendur í grunnskóla, kennara og foreldra. Vefurinn er til þess fallinn að auka áhuga á umferðaröryggi í skólastarfinu. Þar að auki er mikilvægt að ökumenn gæti sérstakrar varúðar í nálægð við skóla- og íþróttasvæði.

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. 

Alls 73 skólar eru skráðir til þátttöku í verkefninu í ár, en enn er hægt að skrá sinn skóla til þátttöku. Göngum í skólann lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 10. október. 

Vefsíða Göngum í skólann.

Skráning í Göngum í skólann.    

Myndin með fréttinni er frá Víkurskóla.