Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Þrír skólar dregnir út í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

11.10.2018

Ólympíuhlaup ÍSÍ var að þessu sinni formlega sett í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði þann 6. september síðastliðinn. Með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Nemendur gátu nú eins og áður valið um þrjár vegalengdir þ.e. 2,5 km, 5 km og 10 km. Hver þátttakandi og hver skóli fékk viðurkenningu þar sem tilgreindur var árangur í hlaupinu. Mjólkursamsalan hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala frá upphafi og samstarfsaðili eins og áður er Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands. 

 
Í ár eins og undan farin tvö ár voru þrír skólar dregnir út sem luku hlaupinu  fyrir 1. október og skiluðu inn upplýsingum til ÍSÍ. Þátttaka í hlaupinu hefur verið mjög góð en nú þegar hafa 66 skólar skilað inn niðurstöðum um hlaupið og voru með í útdrættinum. Skólarnir sem fá verðlaun að þessu sinni eru Háaleitisskóli á Ásbrú, Grunnskólinn á Ísafirði og Naustaskóli á Akureyri. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.
 
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar öllum þeim skólum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna, en bendir jafnframt á að enn er hægt að hlaupa og fá viðurkenningarskjöl þó að búið sé að draga út vinningana.

Myndir með frétt