Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2017

12.03.2018

Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands ársins 2017.Til úthlutunar að þessu sinni voru 127 milljónir króna. Styrkirnir eru greiddir beint til félaga og deilda en hér fyrir neðan má sjá samantekt á skiptingunni tekið saman pr. íþróttahérað. Afar mismunandi er hversu mörg félög eiga aðild að hverju héraði og hversu mörg félög innan hvers héraðs sækja um styrki úr sjóðnum.

Að þessu sinni bárust sjóðnum 250 umsóknir frá 129 félögum úr 21 íþróttahéraði vegna 2.972 keppnisferða í 21 íþróttagrein. Heildarupphæð umsókna var kr. 466.663.237,-. Þau félög sem sóttu um styrk geta nú farið inn í umsókn sína í gegnum vefslóðina sem fylgdi stofnun umsóknarinnar og séð skiptingu styrkja pr. ferð.

Ferðasjóður íþróttafélaga er fjármagnaður með fjárframlagi frá ríkinu. ÍSÍ er falin umsýsla sjóðsins, útreikningur styrkja og úthlutun úr sjóðnum. Fjárstuðningur ríkisins til niðurgreiðslu ferðakostnaðar íþróttafélaga er ómetanlegur og ljóst að styrkir úr sjóðnum hafa afar jákvæð áhrif á þátttöku íþróttafélaga á landsvísu í íþróttamótum innanlands.

 Íþróttahérað     Úthlutun
 Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu  3.047.875
 Héraðssambandið Skarphéðinn  3.692.935
 Héraðssamband Strandamanna  22.806
 Héraðssamband Vestfirðinga  10.191.688
 Héraðssamband Þingeyinga  4.522.277
 Íþróttabandalag Akraness  1.181.801
 Íþróttabandalag Akureyrar  29.993.437
 Íþróttabandalag Hafnarfjarðar  2.869.112
 Íþróttabandalag Reykjavíkur  14.434.905
 Íþróttabandalag Vestmannaeyja  12.203.727
 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar  2.281.960
 Íþróttabandalag Suðurnesja  2.107.364
 Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands  17.326.598
 Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar  924.259
 Ungmennasamband Borgarfjarðar  48.392
 Ungmennasamband Eyjafjarðar  832.572
 Ungmennasamband Kjalarnesþings  9.595.816
 Ungmennasamband Skagafjarðar 4.961.372
 Ungmennasamband Austur-Húnvetninga  14.296
 Ungmennasambandið Úlfljótur  5.909.373
 Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga  836.259
 Samtals  126.998.824