Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag

08.03.2018

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag, 8. mars, og hafa fjöldagöngur verið boðaðar víða um heim af því tilefni. Lesa má meira um daginn á vefsíðu Kvennasögusafns Íslands hér

Til stuðnings alþjóðlegum baráttudegi kvenna og ákalli til aðgerða eða #pressforprogress herferðinni birtir Alþjóðaólympíunefndin (IOC) í dag lykilniðurstöður jafnréttisrannsóknar (Gender Equality Review Project) sem framkvæmd var á þeirra vegum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er mælst til þess að sambandsaðilar IOC nýti sér í sínum störfum 25 lykilviðmið sem beinast að því að breyta samtalinu um konur í íþróttum í heild sinni - frá þátttöku til framsetningu og ákvarðanatöku. Þessi 25 lykilviðmið ná yfir fimm lykilatriði; íþróttir, sköpun, fjármögnun, stjórnarhætti og mannauð. Leitast er eftir því að koma á jafnrétti kynjanna innan Ólympíuhreyfingarinnar og alþjóðaíþróttasamfélagsins, en með lykilviðmiðunum skapast aðgerðaráætlun fyrir alla sambandsaðila innan IOC í þeirri viðleitni. Viðmiðin endurspegla það átak sem IOC og alþjóðasambönd þess hafa nú þegar komið af stað, þ.e. að stuðla að aukinni þátttöku, ákvarðanatöku og forystu kvenna á öllum sviðum íþrótta. 

Hér má sjá þessi 25 lykilviðmið.

Viðmiðin er aðeins eitt skref af mörgum hjá IOC að því markmiði að jafnrétti ríki á milli kynjanna í íþróttaheiminum og víðar. Þátttaka kvenna í íþróttum fer vaxandi, en hlutfall kvenkeppenda á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang 2018 var 42%, sem er met á Vetrarólympíuleikum. Í fyrsta skipti í sögunni fóru jafnmargir kvenna- og karlaviðburðir fram síðasta dag leikanna. 

IOC mælist einnig til þess að íþrótta- og Ólympíusambönd veiti styrki sem stuðla eigi að jafnrétti kynjanna (þar á meðal styrki sem jafna eiga út verðlaunafé sem veitt eru í íþróttakeppnum) og stígi skref til þess að stuðla að fjölbreytni í stjórnum sambandsins og öðrum aðildum. 

IOC hefur einnig komið á árlegum verðlaunaviðburði sem kallast „Konur í íþróttum“ (IOC Women in Sport Awards), þar sem þeim er veitt verðlaun; konum, körlum eða stofnunum, sem hafa sett sitt mark á þróun, hvatningu og styrkingu á þátttöku kvenna í íþróttum.

Hér á vefsíðu IOC má lesa meira um starf IOC sem miðar að því að ná kynjajafnrétti í íþróttaheiminum.