Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Íþróttahátíðin WOW Reykjavik International Games

23.01.2018

Íþróttahátíðin WOW Reykjavik International Games fer fram dagana 25.janúar til 4.febrúar næstkomandi. Leikarnir eru í umsjón Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), sem eru samtök íþróttafélaganna í Reykjavík. Keppt verður í 17 íþróttagreinum þar sem reiknað er með þátttöku á sjötta hundrað erlendra gesta ásamt flestu af besta íþróttafólki okkar Íslendinga. Keppnin fer að mestu fram í Laugardalnum og nágrenni hans en einnig í Egilshöll, á Skólavörðustíg og víðar. 


Íþróttagreinarnar sem keppt er í á leikunum eru mjög fjölbreyttar og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Íþróttagreinarnar eru áhaldafimleikar, badminton, borðtennis, bogfimi, dans, frjálsíþróttir, hjólreiðar, júdó, karate, keila, kraftlyftingar, listhlaup á skautum, ólympískar lyftingar, skotfimi, skylmingar, skvass og sund.

Keppnisdagskráin, sem sjá má hér, skiptist niður á tvær helgar og verða glæsilegar lokahátíðir í Laugardalshöllinni báða sunnudagana. Einnig er ráðstefna um snemmbæra afreksþjálfun barna sem fram fer í Háskólanum í Reykjavik á fimmtudag hluti af dagskránni. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hér á vefsíðu ÍSÍ. 

Almenningi gefst ekki aðeins kostur á að vera áhorfendur á leikunum því hluti af þeim er WOW Northern Lights Run þar sem allir geta tekið þátt. Um er að ræða skemmtiskokk um miðbæ Reykjavíkur þar sem þátttakendur hlaupa með upplýstan varning og eru hluti af glæsilegri ljósasýningu. Hlaupið sem er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavik hefst við Hörpu, fer hjá Hallgrímskirkju, í gegnum Ráðhús Reykjavíkur, og endar svo í Listasafni Reykjavíkur. Nánari upplýsingar má finna hér á nordurljosahlaup.is.

Myndir með frétt