Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Sýnum karakter á Akureyri

21.11.2016

ÍSÍ og UMFÍ standa saman að ráðstefnunni Sýnum karakter í Háskólanum á Akureyri fimmtudaginn 24. nóvember klukkan 17:15 - 19:15. Ráðstefnan er til kynningar á sameiginlegu verkefni og vefsíðu með sama heiti (www.synumkarakter.is) sem ætluð er þjálfurum og íþróttafélögum.

Á ráðstefnunni mun íþróttafólk og þjálfarar halda erindi um hvernig hægt sé að þjálfa karakter. Fyrirlesarar verða Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, Dr. Viðar Halldórsson, Pálmar Ragnarsson körfuboltaþjálfari, Dagný Linda Kristjánsdóttir Ólympíufari og skíðaþjálfari. Fleiri fyrirlesarar munu verða kynntir á næstu dögum. Ráðstefnugestir geta tekið þátt í umræðunum.

Samstarfsaðilar um framkvæmdina á Akureyri eru Háskólinn á Akureyri ásamt Akureyrarbæ. Þátttakendur mæta á ráðstefnuna þeim að kostnaðarlausu. Boðið verður uppá léttar veitingar.

Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig hér.