Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Átröskun og líkamsímynd - hádegisfyrirlestur

24.04.2016

Hver er staða átröskunar og líkamsímyndar á meðal íslensk íþróttafólks? Miðvikudaginn 27. apríl verður opinn hádegisfundur í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal kl: 12:10. Þar verða kynntar niðurstöður úr glænýrri rannsókn. Petra Lind Sigurðardóttir MSc í klínískri sálfræði frá HR mun fara yfir helstu niðurstöðurnar. Rannsóknin beindist að skimun fyrir átröskunareinkennum meðal íþróttafólks hér á landi. Samanburður var gerður á þessum þáttum milli kynja, auk þess sem íþróttagreinar voru bornar saman. Þátttakendur voru íþróttafólk sem keppir á hæsta keppnisstigi í sinni íþrótt hérlendis, 18 ára og eldri. Nánast engar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu viðfangsefni hérlendis og fáar erlendar rannsóknir hafa borið margvíslegar íþróttir saman.

Er íþróttafólk óánægðara með sína líkamsímynd en almennt gengur og gerist? Eru karlar líklegri til að vera óánægðari en konur? Hversu algeng er átröskun og í hvaða greinum birtist hún helst?

Þátttakan er ókeypis og öllum heimil.

Skráning fer fram á skraning@isi.is

Að lokinni framsögu mun verða opið fyrir spurningar úr sal.