Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Námskeið ungra þátttakenda í Grikklandi

12.02.2015

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 23. maí til 6. júní n.k. Að þessu sinni er þemað Ólympíuhreyfingin og sérstök áhersla er lögð á endurnýjun og aðlögun. 

Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leitað er eftir einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum Ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Umsækjendur skulu hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Umsóknum skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, ekki seinna en mánudaginn 23. febrúar n.k. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöðin HÉR.

Umsókn skal skilað á ensku og skulu fylgja henni tvær passamyndir.

Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sími 514 4000, ragnhildur@isi.is

Einnig má benda á heimasíður IOA www.ioa-sessions.org/ , og www.ioa.org.gr