Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Íþróttabókin - ÍSÍ saga og samfélag í 100 ár

08.03.2012Í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ gaf Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands út bók sem ber heitið „Íþróttabókin - ÍSÍ saga og samfélag í 100 ár”. Með útgáfu hennar er leitast við að geyma í senn sögu sambandsins og merka atburði í íslensku íþróttalífi. Ákveðið var að fara nýja leið við upprifjun sögunnar og leggja aðaláhersluna á að fjalla um þau víðtæku áhrif sem íþróttastarfið og íþróttahreyfingin hefur haft á íslenskt samfélag í gegnum tíðina.

Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur ritstýrði verkinu. Fáir Íslendingar hafa jafn yfirgripsmikla þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar. Til liðs við Steinar voru fengnir nokkrir höfundar sem allir eru kunnir íþróttaáhugamenn, Ellert B. Schram, Ágúst Ásgeirsson, Jón M. Ívarsson, Steinþór Guðbjartsson, Björn Vigni Sigurpálsson og Þorgrím Þráinsson. Í ritnefnd bókarinnar voru Stefán S. Konráðsson formaður, Magnús Oddsson, Jón Gestur Viggósson og Unnur Stefánsdóttir. Jón M. Ívarsson annaðist myndaval og útvegun mynda í bókina. Skönnun mynda var í höndum Brynjars Gunnarssonar ljósmyndara. Prentsmiðjan Oddi sá um umbrot og prentun en Árni Jörgensen var útlitshönnuður bókarinnar.
Bókin er víða til sölu. Við ritun bókarinnar kom í ljós að ekki kæmist allt efnið fyrir í bókinni. Seinna verður það efni aðgengilegt hér á heimasiðu ÍSÍ.