Syndum
Vefsíða Syndum er syndum.is
Hér má sjá Facebook-síðu Syndum
Syndum er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ og SSÍ sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.
Á vefsíðu Syndum er að finna ýmsar skemmtilegar upplýsingar varðandi sund og sundlaugar.
Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is:
- Fara í Mínar skráningar og velja sér notendanafn og lykilorð
- Þeir sem eiga notendanafn í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það.
- Skráðu þína vegalengd í hvert skipti sem synt er.
- Taktu þátt í að synda hringinn í kringum landið.