Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Vala Flosadóttir

Vala Flosadóttir fæddist 16. febrúar árið 1978 á Bíldudal, en keppti fyrir ÍR á Íslandi. Á táningsaldri flutti hún út til Svíþjóðar þar sem hún stundaði stangarstökk. Vala náði frábærum árangri í grein sinni. Meðal hennar helstu afreka má nefna að á árunum 1995-1997 setti hún fimm heimsmet unglinga. Árið 1996 varð hún fyrsti Evrópumeistari sögunnar í stangarstökki kvenna á EM innanhús. Hún varð í 2. sæti á evrópska unglingameistaramótinu árið 1997 og hafnaði í 3. sæti á EM árið 1998. Sama ár setti hún tvívegis heimsmet í stangarstökki innanhúss. Árið 1999 varð hún Evrópumeistari 22 ára og yngri og silfurverðalaunahafi á HM innanhúss. Árið 2000 náði Vala 3. sæti á Ólympíuleikunum í Sydney með stökki upp á 4,5 metra. Með stökkinu setti hún jafnframt Íslands- og Norðurlandamet. Hún varð fyrst íslenskra kvenna til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum. Vala var kjörin Íþróttamaður ársins árið 2000. Afreksferill Völu var glæsilegur, en Vala hætti keppni árið 2004.

Vala Flosadóttir var útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ þann 29. desember árið 2012. Hér má sjá hennar síðu í Heiðurshöll ÍSÍ.

RÚV gerði þátt um Völu Flosadóttur (360 gráður í okt. 2012) þar sem hún lítur til baka á ferilinn. Þáttinn er hægt að sjá hér