Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

29.07.2016

Ríó 2016 - Fyrstu Íslendingarnir mættir í ólympíuþorpið

Ríó 2016 - Fyrstu Íslendingarnir mættir í ólympíuþorpiðAndri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og aðalfararstjóri íslenska hópsins kom til Ríó fyrir nokkrum dögum. Eitt af fyrstu verkum hans í ólympíuþorpinu var að merkja íbúðir Íslands, en hver þjóð merkir sínar íbúðir með fánum og borðum. Að sögn Andra lítur þorpið vel út og lítið um vandamál hjá Íslendingunum hvað varðar aðbúnað, þótt aðrar þjóðir hafi það verr, því ekki eru allar íbúðir íþróttamanna tilbúnar. Örvar Ólafsson starfsmaður á Afreks- og Ólympíusviði fór utan í fyrradag og njóta þeir félagar því félagsskapar hvor annars. Í ólympíuþorpinu er ýmislegt hægt að gera sér til dægrastyttingar en fyrir utan blokkir þjóðanna eru til dæmis sundlaugar.
Nánar ...
27.07.2016

Íþróttablaðið

ÍþróttablaðiðÍþróttablaðið er tímarit Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem dreift var inn á öll heimili landsins sl. mánudag. Í blaðinu er einblínt á Ólympíuleikana 2016 sem fara fram í Ríó í Brasilíu þann 5. - 21. ágúst. Átta íslenskir íþróttamenn keppa á leikunum, en keppendur koma úr sundi, fimleikum, júdó og frjálsíþróttum. Í blaðinu má sjá viðtal við íslensku Ólympíufarana ásamt keppnisdagskrá þeirra. Rætt er við Andra Stefánsson aðalfararstjóra íslenska hópsins ásamt því að skyggnast inn í líf Rúnars Alexanderssonar fimleikamanns og hvar hann er staddur í dag, en nú eru 20 ár síðan hann keppti fyrst fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í Atlanta.
Nánar ...
25.07.2016

Ríó 2016 - Yfirlýsing Alþjóðaólympíunefndarinnar

Ríó 2016 - Yfirlýsing AlþjóðaólympíunefndarinnarAþjóðaólympíunefndin gaf á dögunum út þá yfirlýsingu að rússneskt íþróttafólk þurfi ekki að sæta allsherjarbanni frá þátttöku á Ólympíuleikunum í Ríó. Ákvað nefndin að sérsambönd hverrar íþróttagreinar þurfi að skera úr um það hvort rússneskt íþróttafólk þess fái þátttökurétt, hafi það ekki fallið á lyfjaprófi.
Nánar ...
21.07.2016

Ríó 2016 - Fundur með fjölmiðlafólki

Ríó 2016 - Fundur með fjölmiðlafólkiÍ dag fór fram fundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal með hluta af því íslenska fjölmiðlafólki sem fara mun á Ólympíuleikana í Ríó. Á fundinum fór Andri Stefánsson yfir hagnýtar upplýsingar og fjölmiðlafólk fékk afhent skráningarskírteini vegna leikanna.
Nánar ...
19.07.2016

Ríó 2016 - Fundur með Ólympíuförum

Ríó 2016 - Fundur með ÓlympíuförumNú styttist í Ólympíuleikana í Ríó og margt að gerast á þessum síðustu dögum áður en haldið er utan. Í dag fór fram fundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal með þeim íslensku þátttakendum sem fara munu á Ólympíuleikana. Fjallað var um heilbrigðismál á leikunum ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum sem gott er að vita fyrir brottför.
Nánar ...
11.07.2016

Ríó 2016 - Íslenski hópurinn í Peak

Ríó 2016 - Íslenski hópurinn í Peak         Í dag fékk ÍSÍ í hús búnað fyrir Ólympíuleikana í Ríó 2016, en þátttakendur í ár munu klæðast fötum og skóm frá kínverska íþróttavörufyrirtækinu Peak. Um 10 þjóðir munu notast við vörur frá því fyrirtæki, þar á meðal eru keppendur frá Nýja-Sjálandi, Úkraínu, Slóveníu og Kýpur.
Nánar ...
05.07.2016

Einn mánuður í næstu Ólympíuleika

Einn mánuður í næstu ÓlympíuleikaFöstudaginn 5. ágúst nk. verða Ólympíuleikarnir settir með formlegum hætti á Maracana vellinum í Ríó de Janeiro. Þegar aðeins einn mánuður er til stefnu má segja að langt ferli sé að ná hámarki.
Nánar ...
25.05.2016

EOC Seminar 2016

EOC Seminar 2016​Á dögunum fór fram 37. málþing Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC Seminar) í borginni Tarragona á Spáni. Fulltrúar ÍSÍ á málþinginu voru þau Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ.
Nánar ...