Þann 1. apríl 2002 tók
gildi reglurgerð nr. 245/2002 um slysatryggingar íþróttafólks
samkv. III kafla almannatryggingalaga.
Íþróttamenn verða eftir sem áður sjúkratryggðir rétt eins og aðrir
þegnar landsins.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið ákvað að veita Íþrótta- og Ólympíusambandi
Íslands styrk til þess að mæta kostnaðarhluta íþróttamanna sem
verða fyrir íþróttameiðslum. Fram til ársins 2010 dugði styrkur
ráðuneytisins til að endurgreiða íþróttafólki 80% af kostnaðarhluta
sjúklings vegna læknismeðferða og sjúkraþjálfunar en um mitt árið
2010 neyddist framkvæmdastjórn ÍSÍ til að lækka
endurgreiðsluhlutfallið í 40%. Helstu ástæður sem liggja að
baki þeirrar skerðingar eru hækkanir á læknisþjónustu og meðferðum
i sjúkraþjálfun, hækkun viðmiðunar til afsláttarkjara hjá
Sjúkratryggingum Íslands, mikil aukning umsókna og lækkun framlags
heilbrigðisráðuneytisins, sem nú heitir
Velferðarráðuneyti.
Í gildi er Reglugerð ÍSÍ um greiðslu bóta vegna íþróttaslysa og má
hana finna undir Lögum og reglugerðum í efnisveitunni hér á
heimasíðu ÍSÍ.
Útbúið hefur verið sérstakt
eyðublað fyrir þá sem þurfa að sækja um endurgreiðslu. Athugið
að beiðni um endurgreiðslu verður ekki tekin til afgreiðslu nema
öll tilskilin gögn fylgi með. ÍSÍ tekur til endurgreiðslu
m.a. kostnað vegna viðtals við lækni, myndatöku, segulómunar,
aðgerða, komu og endurkomu á slysadeild og sjúkraþjálfunar.
Dæmi um það sem ekki er endurgreitt er m.a. kostnaður vegna kaupa á
lyfjum eða stoðtækjum, tannviðgerða, kostnaðs við sjúkrabíl eða
flugfargjalda í tengslum við læknisþjónustu. ÍSÍ tekur ekki
þátt í kostnaði þjónustu sem ekki er niðurgreidd af
Sjúkratryggingum Íslands.
Nýskráning slyss þarf að
berast ÍSÍ innan 12 mánaða frá því slysið á sér stað.
Athugið að þeir
íþróttaiðkendur sem verða fyrir slysi sem veldur óvinnufærni í 10
daga eða meira þurfa að sækja um endurgreiðslu til Sjúkratrygginga
Íslands á þar til gerðum eyðublöðum. Íþróttaslys
íþróttaiðkenda sem þiggja laun fyrir íþróttaiðkun sína, hvort sem
er um að ræða verktaka eða launþega, flokkast sem vinnuslys og
sækja þarf um endurgreiðslu hjá Sjúkratryggingum Íslands á þar til
gerðum eyðublöðum.
Reglugerðin og eyðublaðið eru framsett í PDF skrám og þarf að hafa
Adobe Acrobat Reader til að geta skoðað þær.