2.5.2012
24.
ársþing Tennissambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal 24. apríl sl. Helgi Þór Jónasson var endurkjörinn
formaður sambandsins. Aðrir í stjórn eru Þrándur Arnþórsson,
Bragi Leifur Hauksson, Gunnar Þór Finnbjörnsson og Júlíana
Jónsdóttir. Í varastjórn voru kjörnir Jónas Páll Björnsson, Jón
Axel Jónsson og Raj K. Bonifacius.
Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn
ÍSÍ en hann var einnig þingforseti.




