Rúmlega 1.000 keppendur frá meira en 60 þjóðum taka þátt í leikunum dagana 13. til 22. janúar 2012. Keppnisgreinar eru 15 Ólympískar vetraríþróttagreinar og eru keppnisviðburðir 63 talsins. Markmið leikanna er að hvetja ungt fólk um allan heim til að tengjast gildum Ólympíuhreyfingarinnar, þ.e. að gera sitt besta, vinskap og viðringu. Leikarnir munu skapa minningar fyrir Innsbruck og ungmenni heimsins auk þess að efla íþróttamenningu landsins og héraðsins.
Innsbruck er höfuðstaður Tyrol héraðsins í Austurríki. Hinn fallegi gamli borgarhluti með sínu þekkta gullþaki og Barrok kirkjum er um 800 ára gamall. Í dag er Innsbruck lífleg borg sem sameinar sögu og nútímann, bæjarlíf og fjallaútivist, tónlist og aðra menningarviðburði. Innsbruck hefur áður haldið tvenna Vetrarólympíuleika, 1964 og 1976, og er nú stolltur gestgjafi fyrstu Vetrarólympíuleika ungmenna. Í Tyrol búa um 700.000 íbúar og eru íþróttir stórhluti af lífstíl þessara íbúa, en fjallgarðar héraðsins gefa kost á mjög fjölbreytilegu íþróttalífi.




