Ólympíuhreyfingin
    

26.2.2012
00:00
Ársþing HSÞ
Ársþing HSÞ verður haldið sunnudaginn 26. febrúar 2012 að Hnitbjörgum á Raufarhöfn.
26.2.2012
13:00
Ársþing SÍL
39. ársþing Siglingasambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni Í Laugardal sunnudaginn 26. febrúar 26. febrúar 2012 og hefst kl. 13:00.
1.3.2012
13:00
Undankeppni Skólahreysti 2012
Íþróttahúsið Smáranum, Kópavogi.
Riðlar kl. 13. - 16. og 19. Sjá nánar á www.skolahreysti.is
3.3.2012
12:30
Meistaramót Íslands, 3. umferð
Meistaramót Íslands í glímu, 3. umferð, Reykjavík 3. mars kl. 12:30.
3.3.2012
17:30
Ársþing GLÍ
Ársþing Glímusambands Íslands verður haldið 3. mars 2012 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Þingsetning verður kl. 17:30.



 

 


 

 
30% auking í Lífshlaupinu

Þátttakan hefur aukist um tæp 30% í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins og hvatningarleik grunnskólanna. Nú hafa 457 (432) vinnustaðir með 1542 (1432) lið skráð 11.701 (10.910) liðsmenn til leiks. Í hvatningarleik grunnskólanna fjölgaði nemendum um 75% eru nú 8.238 en voru í fyrra 4705. 41 skóli er skráður til leiks með 467 (340) bekki (tölurnar í svigunum eru frá 2011).

Á mörgum vinnustöðum með 70 starfsmenn og færri er 100% þátttaka og á vinnustöðum með starfsmannafjöldann frá 150 o.fl. er um 40 – 60% þátttaka.

Síðasti keppnisdagur í vinnustaðakeppninni er í dag, þriðjudagurinn 21. febrúar. Hægt verður að skrá árangur þátttakenda inn á vef Lífshlaupsins til kl: 10:00 fimmtudaginn 23. febrúar. 



Greinar
ÍSÍ 100 ára
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur nú á merkum tímamótum.  Fagnar aldarafmæli.  Að baki er merkileg saga frá því að samtökin voru stofnuð á umbrotatímum í íslensku samfélagi á öndverðri 20. öldinni – nokkrum árum áður en Ísland varð fullvalda ríki.  Í eitthundrað ár hefur íþróttahreyfingin verið samferða þjóðinni og þjóðin samferða íþróttahreyfingunni.