Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

28.06.2013

Velheppnaðri Ólympíuviku lýkur í dag

Velheppnaðri Ólympíuviku lýkur í dagMörg frístundaheimili og íþróttafélög hafa tekið þátt í Ólympíuvikunni sem lýkur í dag. Keilubrautir í eigu Keilusambandsins hafa verið mjög vinsælar og farið víða og fjöldi barna hafa fengið að spreyta sig í skylmingum. Óðinn Björn Þorsteinsson heimsótti frístundaheimili í Grafarvogi og spjallaði við krakkana og leyfði þeim að spreyta sig á kúluvarpi. Þá var A-landslið kvenna í knattspyrnu með opna æfingu og mættu um 70 krakkar, horfðu á æfinguna og fengu svo veggspjöld og eiginhandaáritanir frá stelpunum í lok æfingar. Fleiri fréttir og myndir er að finna á heimasíðu Ólympíuvikunnar, www.olympiuleikar.com.
Nánar ...
28.06.2013

Minningarsjóður Ólafs E. Rafnssonar

Ólafur Eðvarð Rafnsson forseti ÍSÍ sem varð bráðkvaddur þann 19. júní s.l. verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 4. júlí klukkan 15:00. Erfidrykkja verður haldin í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum að lokinni athöfn. Stofnaður hefur verið Minningarsjóður Ólafs E. Rafnssonar sem verður notaður í þágu íþróttahreyfingarinnar í minningu Ólafs og hans mikla og óeigingjarna starfs innan hennar. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu heiðra minningu hans er bent á reikningsnúmer Minningarsjóðsins 0537-14-351000, kennitala sjóðsins er 670169-0499.Sjóðurinn verður í umsjón Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og eru nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sambandsins í síma 514 4000.
Nánar ...
24.06.2013

Fyrsti dagur í ólympíuvikunni

Þá er ólympíuvikan hafin og mörg sumarnámskeið eru með hreyfi- eða íþróttaviku í tengslum við ólympíudaginn. Sum námskeiðin ætla að fá íþróttamann eða konu í heimsókn og aðrir ætla að kíkja í Laugardalinn á kynningar í skylmingum eða hafnarbolta.
Nánar ...
21.06.2013

Afmæli IOC - Alþjóða ólympíunefndarinnar 23. júní

Alþjóða ólympíunefndin á afmæli á sunnudaginn 23. júní. Í tilefni af því er haldið uppá ólympíudag um allann heim í kringum þá dagsetningu. Íþróttahreyfingin leggur sitt að mörkum og ætla meðal annars nokkur íþróttafélög og frístundaheimili ætla að halda uppá daginn í þeirri viku með íþróttadegi - ólympíudegi. Þeir sem vilja kynna sér það betur geta kíkt á heimasíðu ólympíudagsins
Nánar ...
20.06.2013

Ólafs minnst í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal

Ólafs minnst í Íþróttamiðstöðinni í LaugardalHaldin var stutt samverustund í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal fyrir hádegi í dag vegna skyndilegs fráfalls Ólafs E. Rafnssonar, forseta ÍSÍ. Séra Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur fjölskyldu Ólafs, leiddi samverustundina ásamt Lárusi Blöndal varaforseta ÍSÍ. Missir íþróttahreyfingarinnar við fráfall Ólafs er mikill en hugur allra á þessari stundu er þó hjá eiginkonu og börnum Ólafs, sem og öðrum aðstandendum sem eiga um sárt að binda. Mikill samhugur ríkti á samverustundinni. Séra Sigríður Kristín fór með minningarorð og var Ólafs minnst með mínútuþögn. ÍSÍ hefur borist fjöldi bréfa og skeyta með samúðarkveðjum frá samstarfsfélögum Ólafs innanlands og utan.
Nánar ...
19.06.2013

Ólafur E. Rafnsson látinn

Ólafur E. Rafnsson látinnForseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, Ólafur Eðvarð Rafnsson, er látinn, fimmtugur að aldri. Ólafur varð bráðkvaddur í Sviss nú fyrr í dag þar sem hann sótti fund í miðstjórn FIBA World , Alþjóða Körfuknattleikssambandsins.
Nánar ...
19.06.2013

Ólympíudagurinn haldinn í vikunni 24.- 28. júní

Á hverju ári er haldið upp á Alþjóðlega ólympíudaginn út um allan heim þann 23. júní. Þann dag árið 1894 var Alþjóða Ólympíunefndin stofnuð. Hér á landi hefur þessi dagur verið haldinn hátíðlegur undanfarin ár. Heimasíða viðburðarins er www.olympiuleikar.com
Nánar ...
18.06.2013

Hið vinsæla sumarfjarnám 1. og 2. stigs ÍSÍ framundan

Hið vinsæla sumarfjarnám 1. og 2. stigs ÍSÍ framundanSumarfjarnam 1. og 2. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst á næstu vikum og stendur skráning yfir. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár, margir sem sjá sér hag í því að taka þetta nám á sumrin. Sumarið 2012 voru 43 nemendur/þjálfarar sem hófu nám á 1. stigi! Hvað gerist í ár? Fjarnám 1. stigs hefst mánudaginn 24. júní nk. og fjarnám 2. stigs hefst mánudaginn 8. júlí. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000. Við skráningu þarf að gefa upp fullt nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang og símanúmer og að sjálfsögðu á hvort námskeiðið er verið að skrá. Þátttökugjald á 1. stigið er kr. 25.000.- en kr. 18.000.- á 2. stigið og eru öll námskeiðsgögn innifalin. Námið á 1. stigi tekur 8 vikur en 5 vikur á 2. stigi.
Nánar ...
12.06.2013

Barátta um embætti forseta Aþjóðaólympíunefndarinnar

Kosið verður á milli sex einstaklinga í kjöri til embættis forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar - IOC í haust en Dr. Jaques Rogge forseti IOC gefur ekki áfram kost á sér í embættið. Kjörið fer fram á 125. IOC Session sem fer fram í Buenos Aires í Argentínu í september næstkomandi.
Nánar ...
11.06.2013

Myndir frá Kvennahlaupinu

Myndir frá KvennahlaupinuHér á heimasíðu ÍSÍ, neðarlega á síðunni og inn á heimasíðu Sjóvá má sjá myndir frá Kvennahlaupinu 2013. Inn á Sjóvá síðunni eru einnig myndir frá fyrri hlaupum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Sjóvá og aðrir samstarfsaðilar þakka öllum þeim sem tóku þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ fyrir daginn. Á næsta ári fagnar Kvennahlaupið 25 ára afmæli.
Nánar ...