Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Jákvæðir þátttakendur á stjórnendanámskeiði

21.09.2020

Dagana 16.-18. september stóð ÍSÍ fyrir stjórnendanámskeiði sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Námskeiðið sátu 26 einstaklingar sem vinna í íþróttahreyfingunni. Gunnar Jónatansson stjórnendamarkþjálfi var aðalkennari á námskeiðinu, en aðrir kennarar voru þeir Birkir Smári Guðmundsson lögfræðingur ÍSÍ og Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ sem jafnframt var námskeiðsstjóri. Skipulag námskeiðsins var í höndum starfsmanna Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ. 

Fyrirlestur Andra var um Alþjóðaólympíuhreyfinguna og Birkir Smári fjallaði um íslenskt og alþjóðlegt lagaumhverfi íþrótta. Gunnar Jónatansson sá alveg um kennsluna í tvo daga og lét þátttakendur vinna saman í pörum og smærri hópum. Viðfangsefnin voru margvísleg og má þar nefna verkefnastjórnun og tímastjórnun, hlutverk og ábyrgð starfsmanna, skipulag tölvupósts, fundir og fundarstjórn og stjórnun teyma. Gott og jákvætt andrúmsloft skapaðist á námskeiðinu og voru þátttakendur mjög virkir allan tímann.

Námskeiðið er vottað af Alþjóðaólympíuhreyfingunni (IOC) og styrkt af Ólympíusamhjálpinni og fengu allir viðurkenningu frá IOC í lok námskeiðsins. Þetta er í annað sinn á árinu sem svona námskeið er haldið en það fyrra var haldið í janúar.