Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Göngum í skólann hefst 2. september

10.08.2020

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samstarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í fjórtánda sinn miðvikudaginn 2. september næstkomandi. Ætlar þinn skóli ekki örugglega að taka þátt í ár?

Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 en alls 74 skólar skráðu sig til leiks árið 2019.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Verkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál. Þeir skólar sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann fara á vefsíðu Göngum í skólann hér og smella á „Skráning“. Einnig er hægt að hafa samband við Kristínu Birnu, verkefnastjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4000 eða á netfangið kristino@isi.is.