Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Alþjóðadagur íþrótta í þágu þróunar og friðar

06.04.2020

Alþjóðadagur íþrótta fer fram í dag þann 6. apríl í sjöunda sinn. Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) valdi daginn sem dag íþrótta. Á deginum er lögð áhersla á mikilvægi íþrótta til að stuðla að þróun og friði í heiminum. Vegna ástandsins í heiminum í dag er deginum í dag ætlað að beina ljósum að heilsufarslegum áhrifum þess að iðka íþróttir og að hreyfa sig.

Á vefsíðu UNESCO er talað um mikilvægi íþrótta í tengslum við að færa fólk saman, t.d. fólk af ólíkum menningarheimum, að íþróttir styrki samfélög á ýmsan hátt, að gildi íþrótta séu göfug og eigi við alla, að íþróttaiðkun sé mikilvæg fyrir heilbrigt líferni, að íþróttir séu stór hluti af þeirri baráttu að ná jafnrétti kynjanna og fleira. Lögð er áhersla á að íþróttir séu stundaðar í hverju samfélagi og að ríkisstjórnir eigi að styðja við íþróttaiðkun af fremsta megni.

Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) notaði tækifærið og hvatti fólk til þess að hreyfa sig og hugsa um heilbrigði sitt þrátt fyrir ástandið í heiminum í dag vegna Covid-19.