Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Þrír skólar dregnir út í Ólympíuhlaupi ÍSÍ 2019

08.10.2019

Ólympíuhlaup ÍSÍ var að þessu sinni formlega sett á Ísafirði þann 18. september með þátttöku fjögurra skóla á svæðinu, Grunnskóla Ísafjarðar og grunnskólum Bolungarvíkur, Suðureyrar og Súðavíkur. Með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Nemendur gátu nú eins og áður valið um þrjár vegalengdir þ.e. 2,5 km, 5 km og 10 km. Hver þátttakandi og hver skóli fékk viðurkenningu þar sem tilgreindur var árangur í hlaupinu. Mjólkursamsalan hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala frá upphafi og samstarfsaðili eins og áður er Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands. 

Í ár eins og undan farin þrjú ár voru þrír skólar dregnir út sem hafa lokið hlaupinu og skilað inn upplýsingum til ÍSÍ. Þátttaka í hlaupinu hefur verið mjög góð en nú þegar hafa 67 skólar skilað inn niðurstöðum um hlaupið og voru með í útdrættinum. Skólarnir sem fá verðlaun að þessu sinni eru Flóaskóli í Flóahreppi, Stórutjarnarskóli í Þingeyjarsveit og Vogaskóli í Reykjavík. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar öllum þeim skólum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna, en bendir jafnframt á að enn er hægt að hlaupa og fá viðurkenningarskjöl þó að búið sé að draga út vinningana.