Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

100 dagar til Ólympíuleika ungmenna í Lausanne

01.10.2019

Í dag eru 100 dagar þar til þriðju Vetrarólympíuleikar ungmenna (YOWG) verða settir í Lausanne í Sviss. Leikarnir standa yfir frá 9. - 22. janúar 2020.

Keppnisdagskráin hefur nú verið birt og neðst í fréttinni má sjá myndband þar sem farið er yfir dagskránna. Á þeim 13 dögum sem keppnin fer fram eru 81 viðburður á dagskrá og er um að ræða átta keppnisstaði. 1880 íþróttamenn, þar sem kynjahlutfall er jafnt, 940 konur og 940 karlar, munu etja kappi á leikunum.

Skipuleggjendur YOWG í Lausanne hafa í nógu að snúast fram að leikum. Nú munu fara fram viðburðir um allt Sviss fram að leikum þar sem ung fólk er hvatt til þess að hreyfa sig. Íslendingar munu eiga fulltrúa á leikunum, en hverjir það eru kemur í ljós á næstu vikum. 

Vefsíðu leikanna má sjá hér.

Um Ólympíuleika ungmenna
Ólympíuleikar ungmenna eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 15 til 18 ára. Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikarnir. Hugmyndina á Jacues Rogge forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og var hún kynnt til sögunnar árið 2001. Fyrstu vetrarleikarnir fóru fram 2012 í Innsbruck í Austurríki og aðrir leikarnir í Lillehammer í Noregi 2016. Ísland hefur í bæði skiptin sent þátttakendur á leikana. 

Myndir með frétt