Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Búið að úthluta úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2018

26.03.2019

Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands ársins 2018. Til úthlutunar að þessu sinni voru 127 milljónir króna. Styrkirnir eru greiddir beint til félaga og deilda en hér fyrir neðan má sjá samantekt á skiptingunni tekið saman pr. íþróttahérað. Afar mismunandi er hversu mörg félög eiga aðild að hverju héraði og hversu mörg félög innan hvers héraðs sækja um styrki úr sjóðnum.

Að þessu sinni bárust sjóðnum 278 umsóknir frá 135 félögum úr 22 íþróttahéraði vegna 2.987 keppnisferða í 22 íþróttagreinum. Heildarupphæð umsókna var kr. 499.127.608,-. Þau félög sem sóttu um styrk geta nú farið inn í umsókn sína í gegnum vefslóðina sem fylgdi stofnun umsóknarinnar og séð skiptingu styrkja pr. ferð.

Ferðasjóður íþróttafélaga er alfarið fjármagnaður með fjárframlagi frá ríkinu. ÍSÍ er falin umsýsla sjóðsins, útreikningur styrkja og úthlutun úr sjóðnum. Fjárstuðningur ríkisins til niðurgreiðslu ferðakostnaðar íþróttafélaga er ómetanlegur og hefur afar jákvæð áhrif á þátttöku íþróttafélaga á landsvísu í íþróttamótum innanlands.

 Íþróttahérað  Styrkupphæð
 Héraðssamband Bolungarvíkur  40.471
 Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu  3.503.040
 Héraðssambandið Skarphéðinn    3.853.454 
 Héraðssamband Vestfirðinga  8.794.296
 Héraðssamband Þingeyinga     5.003.988
 Ungmennasamband Borgfirðinga     228.650
 Ungmennasamband Eyjafjarðar    910.196
 Ungmennasamband Kjalarnesþings     8.701.328
 Ungmennasamband Skagafjarðar     6.819.411
 Ungmennasamband Austur-Húnvetninga  12.162
 Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga  1.161.804
 Ungmennasambandið Úlfljótur    4.330.044
 Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands     16.818.090
 Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar     1.258.731
 Íþróttabandalag Akraness     815.918
 Íþróttabandalag Akureyrar     30.577.430
 Íþróttabandalag Hafnarfjarðar     4.122.840
 Íþróttabandalag Reykjavíkur     14.972.634
 Íþróttabandalag Vestmannaeyja     10.575.294
 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar             2.330.052
 Íþróttabandalag Suðurnesja             2.169.076