Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin 23. – 30. september nk. í yfir 30 Evrópulöndum.

09.07.2018

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur líkt og á síðasta ári hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands mun hefja Íþróttaviku Evrópu formlega í Laugardalnum sunnudaginn 23. september með ýmsum uppákomum. Það verður nánar auglýst síðar. Jafnframt er stefnt að því að hafa viðburði eða kynningar í hverjum landshluta. Ef sambandsaðilar eru með skemmtileg verkefni eða viðburði innan sinna vébanda sem fallið gætu vel að markmiðum og tímasetningum vikunnar er um að gera að hafa samband við ÍSÍ. Verkefnin þurfa ekki endilega að vera ný heldur má einnig tengja við Íþróttavikuna verkefni sem nú þegar hafa verið skipulögð af hálfu sambandsaðila.

ÍSÍ óskar eftir því að allir sambandsaðilar ÍSÍ sem hafa áhuga á að tengjast eða taka þátt í Íþróttavikunni með viðburðum eða kynningarstarfsemi hafi samband við ÍSÍ varðandi samstarf. Hægt er að nálgast upplýsingar um tilgang og markmið verkefnisins á heimasíðu þess www.beactive.is. Verkefnið er líka að finna á Facebook hér.


Vinsamlegast hafið samband við Hrönn Guðmundsdóttur, sviðsstjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, í síma 514 4000 eða á hronn@isi.is fyrir frekari upplýsingar.