Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Hilmar hafnaði í 20. sæti í stórsvigi

14.03.2018Hilmar Snær Örvarsson hefur lokið sinni fyrstu grein á Vetrar-Paralympics í Suður-Kóreu en hann varð á íslenskum tíma í nótt í 20. sæti í stórsvigi í standandi flokki. Hilmar bætti sig um tæpa sekúndu á milli ferða, var í 26. sæti eftir fyrri ferðina og klifraði upp í 20. sæti eftir þá síðari. Glæsileg frammistaða hjá þessum 17 ára skíðamanni frá Víkingi.

Sigurvegari keppninnar var Theo Gmur frá Sviss, Aleksei Bugaev frá Rússlandi varð annar en hann keppir eins og flestir þekkja undir fána IPC þar sem Rússar hafa ekki aðgengi að leikunum að fullu sem þátttökuþjóð. Í þriðja sæti varð svo Kanadamaðurinn Alexis Guiomond.

Alls 30 keppendur náðu að ljúka báðum ferðum en 42 keppendur tóku þátt í dag. Þá á Hilmar eina keppnisgrein eftir en það er svigkeppnin sem fram fer þann 17. mars næstkomandi

Mynd/ Getty