Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Fjolla Shala knattspyrnukona hélt frábært erindi

18.10.2017

Ráðstefnan Sýnum karakter - Allir með fór fram í september sl. Ráðstefnan var tileinkuð ungu fólki innan íþróttahreyfingarinnar og voru þátttakendur á aldrinum 13-25 ára. 

Ráðstefnan var tekin upp og er nú búið að birta fyrirlestur knattspyrnukonunnar Fjolla Shala. Fjolla og fjölskylda hennar eru frá Kosovo. Hún var um fimm ára þegar hún flutti til Ísland. Fjolla er leikmaður meistaraflokks kvenna í Breiðabliki.

Erindi Fjollu á ráðstefnunni má sjá á vefsíðu Sýnum karakter hér.

Vefsíða Sýnum karakter er synumkarakter.is og verkefnið er einnig með facebook-síðu undir nafninu Sýnum karakter.

Sýnum karakter er samstarfsverkefni  Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ). Um ár er síðan ÍSÍ og UMFÍ ýttu verkefninu úr vör. Sýnum karakter fjallar um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni. 

Á meðal þeirra sem fluttu erindi á ráðstefnunni að meðtalinni Fjolla Shala voru Gunnar Gunnarsson, formaður UÍA, Hafrún Kristjánsdóttir, sviðsstjóri í HR, dómarinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, Vanda Sigurgeirsdóttir og körfuboltaþjálfarinn Pálmar Ragnarsson. Fyrirlestrarnir verða aðgengilegir innan skamms.

Myndir frá ráðstefnunni má sjá á myndasíðu ÍSÍ hér.