Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

GSSE 2017: Sundfólkið með sex verðlaun í dag

01.06.2017

Bryn­dís Rún Han­sen fékk gullverðlaun í 50 m skriðsundi í dag á tím­an­um 26,22 sek­.

Hrafn­hild­ur Lúth­ers­dótt­ir fékk gullverðlaun í 100 m bring­u­sundi á tím­an­um 1:08,84. Kar­en Mist Arn­geirs­dótt­ir var í 4. sæti í sama sundi.

Íslenska sveitin í 4x100m fjór­sundi kvenna, Hrafn­hild­ur Lúth­ers­dótt­ir, Eygló Ósk Gúst­afs­dótt­ir, Bryn­dís Rún Han­sen og Inga Elín Cryer, hafði mikla yfirburði í dag. Þær syntu á 4:10,50 og voru 13 sek­. á und­an Kýp­ur. Íslenska sveitin setti þar með mótsmet.

Íslenska sveitin í 4x100m fjórsundi karla, Davíð Hildi­berg Aðal­steins­son, Vikt­or Máni Vil­bergs­son, Ágúst Júlí­us­son og Aron Örn Stef­áns­son, unnu til silfurverðlauna í dag. Þeir syntu á tím­an­um 3:47,67. Íslenska sveitin setti þar með landsmet.

Vikt­or Máni Vil­bergs­son vann til silf­urverðlauna í 100 m bring­u­sundi á tím­an­um 1:03,73. Krist­inn Þór­ar­ins­son hafnaði í 4. sæti í sama sundi. 

Eygló Ósk Gúst­afs­dótt­ir vann til bronsverðlauna í 200 m skriðsund­inu á tímanum 2:04,24. Sunn­eva Dögg Friðriks­dótt­ir varð í 6. sæti.

Kristó­fer Sig­urðsson varð í 5. sæti og Þröst­ur Bjarna­son varð í 6. sæti í 200 m skriðsundi.

Aron Örn Stef­áns­son varð í 4. sæti í 50 me skriðsundi.

Myndir með frétt