Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Ráðstefna um heilsueflingu eldri aldurshópa í dag

16.03.2017

Í dag, fimmtudaginn 16. mars, stendur ÍSÍ í samstarfi við Öldrunarráð Íslands, Landssamband eldri borgara, Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra fyrir ráðstefnu um málefni eldri aldurshópa í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni Aldrei of seint – Heilsuefling eldri aldurshópa.

Ráðstefnan hefst kl. 14:00 með ávarpi forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, og lýkur henni um kl. 17:30. Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar.

Hvað ætla stjórnvöld að gera til að hrinda í framkvæmd markvissri heilsueflingu eldri borgara?

Rannsóknir hafa margsinnis staðfest að hreyfing og hollt mataræði leika lykilhlutverk í að bæta heilsu eldri borgara.

Á ráðstefnunni verður annars vegar farið ofan í saumana á því hvernig best er að standa að þessari heilsueflingu, fjallað um félagslega þáttinn og þátt næringar og hvers konar heilsurækt henti fólki í eldri aldurshópum. Meðal þeirra sem taka til máls eru öldrunarlæknir, íþrótta- og heilsufræðingur, heilsuhagfræðingur, félagsfræðingur og fyrrum íþróttamaður.

Borgarstjóri, landlæknir, heilbrigðisráðherra og sveitarstjóri sitja fyrir svörum um það hvernig stjórnvöld ætla að beita sér í þessum efnum. Þessir aðilar hafa þegar fengið hnitmiðaðar spurningar um heilsueflingu sem þeir byrja á því að svara áður en þeir setjast í pallborðið.

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.