Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Ráðstefnan Að stjórna íþróttafélagi færð í stærri sal

14.03.2017

Vegna mikillar skráningar á ráðstefnuna „Að stjórna íþróttafélagi - Ekkert mál?“ hefur ráðstefnan verið færð í stærri sal innan Háskóla Íslands, úr Odda í Öskju. Ráðstefnan hefur það að markmiði að efla samstarf háskólasamfélagsins og þeirra aðila sem koma því starfi sem fram fer innan íþróttafélaga og fá fram umræðu um ýmis málefni og álitamál sem varða stjórnun og rekstur þeirra.

Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér.

 

Staðsetning: Askja, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík - Háskóli Íslands

Tímasetning og fyrirkomulag: Ráðstefnan fer fram föstudaginn 24. mars 2017 og verður sett kl. 12:00, en síðan verða erindi og umræður í fjórum hlutum til um kl. 16:30. Eftir það er þátttakendum frjálst að halda áfram skemmtilegu spjalli í Stúdentakjallaranum, Háskólatorgi.

Ráðstefnustjóri: Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðsmála hjá Háskóla Íslands.

Skráning: Nauðsynlegt er að skrá sig á heimasíðu ÍSÍ, hér, eigi síðar en fimmtudaginn 23. mars nk.

Aðgangur er ókeypis og er tekið við skráningum á meðan húsrúm leyfir.