Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Ríó 2016 - Guðni Valur í 21. sæti

12.08.2016

Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason keppti í kringlukasti á Ólympíuleikunum í Ríó í dag. Guðni Valur kastaði fyrst 53.51, næst 60.45 og síðasta kast var 59.37. Hann endaði í 21. sæti keppninnar af 35 þátttakendum.

Til þess að ná í ör­uggt sæti í úr­slit­um þurfti að kasta kringl­unni 65.50 metra. Besta árangri sínum til þessa náði Guðni Valur í Hafnarfirði þann 10. september 2015 þegar hann kastaði 63.50 metra. Síðastur inn í úrslitin, sá sem varð í 12. sæti í undan­keppn­inni, kastaði kringl­unni 62.68 metra.

 
 
 

Myndir með frétt