Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Platínuhafar Lífshlaupsins

06.02.2014Einstaklingskeppni Lífshlaupsins er í gangi allt árið og gefst einstaklingum kostur á því að vinna sér inn brons, silfur, gull og platínumerki á hverju Lífshlaupsári.

Á síðasta Lífshlaupsári náðu 60 einstaklingar platínumerki en til þess að ná því merki þarf að hreyfa sig í 335 daga. Af þeim voru 23 einstaklingar sem hreyfðu sig í a.m.k. 30 mínútur á dag, daglega síðan 6. febrúar 2013. Fimm þeirra sem náðu þessum frábæra árangri fengu platínumerkið og viðurkenningu afhenda í gær á opnunarhátíð Lífshlaupsins í Hraunvallaskóla. Þau eru Lísbet Grímsdóttir, Guðbjartur Guðbjartsson, Hlöðver Örn Vilhjálmsson, Anna G. Jósefsdóttir og Hugrún Reynisdóttir

Hægt er að sjá mynd af verðlaunahöfunum inn á síðu Lífshlaupsins á Facebook.