Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Felix - félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ

Felix er miðlægt tölvukerfi ÍSÍ og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og heldur utan um íþróttaiðkendur á Íslandi. Kerfið var fyrst tekið í notkun árið 2004 og er hannað af hugbúnaðarfyrirtækinu Idega. Nýtt og endurbætt kerfi var svo tekið í notkun snemma árs 2017.

Íþróttafélög innan ÍSÍ og UMFÍ hafa beinan aðgang inn í kerfið í gegnum helstu vafra sem eru á markaðnum s.s. Internet Explorer og Firefox. Kerfið fá sambandsaðilar til notkunar endurgjaldslaust og nýtist til að halda utan um daglega skráningu þátttakenda í íþróttastarfinu.

Þjóðskrá kerfisins er uppfærð mánaðarlega sem auðveldar til muna allt utanumhald. Þá er hægt að halda utan um netföng einstaklinga og senda tölvupóst beint úr kerfinu.

Kerfið býður upp á öfluga aðgangsstýringu sem gerir félögum kleift að aðgangstýra kerfinu. Þannig er t.d. hægt að gefa þjálfurum aðgang til að skrá og uppfæra upplýsingar um sína iðkendur. Allar breytingar sem verða á högum iðkenda breytast miðlægt sem tryggir að alltaf er verið að vinna með réttar upplýsingar.

Kerfið er einnig notað til að senda inn árlegar upplýsingar til ÍSÍ, svokallaðar starfsskýrslur ÍSÍ, sem félögum ber að skila skv. lögum ÍSÍ fyrir 15. apríl ár hvert. Skýrslurnar innihalda félaga- og iðkendatal, upplýsingar um stjórn sem og lykiltölur úr ársreikningum.

Þessar upplýsingar eru afar mikilvægar og á þeim byggir tölfræði íþróttahreyfingarinnar sem m.a. er notuð í samskiptum við opinbera aðila.
 
Þá geta félög, héraðssambönd og sérsambönd sótt sína eigin tölfræði inn í kerfið sem getur m.a. nýst við stefnumótun og til að fylgjast með þróun í viðkomandi einingu, kynjaskiptingu, aldursgreiningu o.fl.

Umsjónaraðili Felix kerfisins er Elías Atlason (514-4000/elias@isi.is), en hann sér um að stofna aðgang fyrir kerfisstjóra félaga.

Aðgangsúthlutun er á ábyrgð félaganna sjálfra, sem sjá um að gefa þjálfurum, starfsfólki og öðrum þeim sem þeir kjósa að gefa aðgang. Það er í höndum félaganna sjálfra að ákveða hverjir hafa aðgang og að hverju. Félög geta óskað eftir aðstoð hjá umsjónaraðila Felix.

Nauðsynlegt er að félög haldi utan um hverjir hafa aðgang og að hvaða gögnum. Góð vinnuregla er að halda skrá utan um aðgangsaðildir og muna að fjarlægja aðgang fólks þegar það hefur ekki lengur þörf fyrir hann.