Fara í efni

Afreksmiðstöð Íslands

Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) er stjórnstöð afreksíþróttastarfs á Íslandi og hefur yfirsýn yfir öll afreksmál ÍSÍ og einstakra sérsambanda. Starf AMÍ er í náinni samvinnu við sérsambönd ÍSÍ og vísindasamfélagið.

Starfsemi AMÍ

AMÍ er faglegur vettvangur fyrir afreksfólk ólíkra íþrótta sem hefur möguleika á að skara fram úr. Með því að skapa bestu mögulegu umgjörð í kringum íþróttafólkið aukast líkurnar á að komast í fremstu röð. AMÍ vinnur með sérsamböndum og fagfólki að markvissri afreksþjálfun út frá nýjustu rannsóknum. Faglega starfinu er stýrt af AMÍ í gegnum fimm fagsvið:

  • Mælingar og stöðumat
  • Líkamleg þjálfun
  • Meðhöndlun og heilsa
  • Sálfræði
  • Næringarfræði 

Fátt sameinar þjóðina betur en þátttaka og velgengni í íþróttum á alþjóðlega sviðinu. Góður árangur skapar landi og þjóð aukna umfjöllun og landkynningu með tilheyrandi hagvaxtaráhrifum. Öflugar fyrirmyndir og leiðtogar hafa ekki aðeins mikið forvarnargildi fyrir börn og ungmenni, heldur eru þær einnig hvatning fyrir almenning. 

Íslenska leiðin

Afreksstefna

Afreksstefna ÍSÍ er langtímastefna um hvernig Ísland byggir upp og styður afreksíþróttafólk til að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi.

Markmiðið er að:

  • íslenskt afreksíþróttafólk skipi sér á bekk með þeim bestu í heiminum

  • tryggja faglegt og siðferðislegt starfsumhverfi

  • styðja við íþróttafólk á meðan ferli stendur og eftir að því lýkur

Stefnan var samþykkt á Íþróttaþingi ÍSÍ 17. maí 2025.

Afreksstyrkir

ÍSÍ úthlutar styrkjum til sérsambanda ÍSÍ, byggt á umsóknum. Um er að ræða styrki úr Afrekssjóði ÍSÍ vegna fjölbreyttra afreksverkefna sérsambanda og íþróttafólks, greiðslur úr launasjóði til afreksíþróttafólks og afreksþjálfara og kostnaðarþátttöku vegna ungmenna í landsliðsverkefnum. Hægt er að lesa um áherslur og upphæðir í ársskýrslum Afrekssjóðs ÍSÍ og Afreksmiðstöðvar Íslands (AMÍ) hér.